Skilmálar
Þjónustuskilmálar
Návist ehf.
Ísland, Reykjanesbær
kt: 530126-0560
Rnr: 0133-26-021797
navistverslun@gmail.com
ALMENNT
Návist verslun áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verð upplýsinga og annarra rangra upplýsinga. Upplýsingar um verð og magn á lager er birt með fyrirvara um innsláttarvillur. Ef einhverjar athugasemdir koma upp í pöntunarferli verður haft samband við kaupanda áður en greiðsla fyrir vörunni er móttekin. Vörur eru afgreiddar eftir að greiðsla hefur borist.
DROPP
Bjóðum upp á fastan sendingarkostnað í netverslun með Dropp. Með því að velja vörur í körfu bætist við sendingarkostnaður ef óskað er að fá vörurnar sendar. Við áskiljum okkur þann rétt að hafa samband við kaupanda ef einhverjar villur kunna að koma upp varðandi útreikning á sendingarkostnaði og leiðrétta ef útreikningur hefur ekki komið rétt út.
Sendingakostnaður
Höfuðborgarsvæðið 870kr
Aðrir staðir 1.075kr
Heimsendingar:
Höfuðborgarsvæðið 1.410kr
Akranes, Eyrarbakki, Hveragerði, Selfoss, Stokkseyri, Reykjanesbær, Þorlákshöfn: 1.660kr
SKILAFRESTUR OG ENDURGREIÐSLURÉTTUR
Kaupandi hefur 14 daga frest til að falla frá kaupum, enda sé varan ónotuð og henni skilað í upprunalegu ástandi. Einnig þarf að fylgja pöntunarnúmer með skilum. Skilafrestur miðast við að varan hafi borist seljanda innan 14 daga frá afhendingu.
Endurgreiðsla er framkvæmd að fullu þegar skilyrði um skil eru uppfyllt og seljandi hefur móttekið og yfirfarið vöruna. Athugið að sendingar- og póstburðargjöld eru ekki endurgreidd.
Ekki er hægt að skila eða skipta lagersölu- eða útsöluvörum og eru þær seldar í því ástandi sem þær eru í.
GALLAR Á VÖRU
Við móttöku vöru er kaupanda bent á að yfirfara vöruna eins fljótt og auðið er og ganga úr skugga um að hún sé í lagi. Komi fram framleiðslugalli þarf að tilkynna hann innan eðlilegs tíma. Eftir 2 mánuði frá afhendingu verður almennt ekki tekið við kvörtunum vegna framleiðslugalla, þar sem ætla má að slíkur galli hefði komið fram innan þess tíma.
Til að óska eftir skoðun á gallaðri vöru þarf að framvísa kvittun eða öðrum kaupstaðfestingum sem sýna að varan hafi verið keypt hjá Návist. Einnig þarf að senda mynd af vörunni ásamt greiðslustaðfestingu á netfangið navistverslun@gmail.com. Öllum fyrirspurnum er svarað innan 7 virkra daga.
ÚTSÖLUR OG VÖRUSKIL
Skilaréttur gildir ekki um vöru sem keypt er á útsölu.
VERÐ OG TRÚNAÐUR
Athugið að verð í netverslun geta tekið breytingum án fyrirvara. Einnig getur lagerstaða í netversluninni breyst og er birt með fyrirvara um mögulegar villur eða breytingar. Návist áskilur sér rétt til að leiðrétta rangar verðupplýsingar, hætta við pantanir vegna mistaka eða annarra óviðráðanlegra aðstæðna, sem og að breyta verði eða hætta sölu á vörum án fyrirvara. Einnig áskilur verslunin sér rétt til að staðfesta pantanir símleiðis ef þörf krefur.
Hægt er að borga með millifærslu eða aur.
kt: 530126-0560
Rnr: 0133-26-021797
Um vörukaup gilda lög um neytendakaup nr. 48/2003 og lög um lausafjárkaup nr. 50/2000.
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði varðandi allar upplýsingar sem veittar eru í tengslum við viðskipti. Upplýsingar kaupanda verða aldrei afhentar þriðja aðila nema skylt sé samkvæmt lögum.